jíha
27.02.2006 10:37:45 / vilborg

Hætt


Im out. Ætla að hætta að blogga í bili, byrja kannski aftur þegar ég flyt út í haust.

Takk fyrir samveruna
blessó


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 10:36:17 / vilborg

www.therushes.org


okei ég skil ekki alveg heimsóknarfjöldann inn á síðuna undanfarið. farinn úr ca.25 heimsóknum í yfir 100 flesta daga. Vona að það séu einhver mistök í kerfinu því annars er þetta soldið spúkí. Who´s there?

Það bættist óvæntur atburður í dagskrá febrúarmánaðar sl. fimmtudag en það voru tónleikar The Rushes sem er bresk hljómsveit sem spilaði m.a. á airwaves hér í okt sl. Þrír strákar mynda hljómsveitina sem er alveg frábær. Mjög góðir og eiga örugglega eftir að verða þekktari á næstunni. Hlynsi rokkari þekkti auðvitað gengið og vorum við því í eftirpartýi með hljómsveitinni og fleirum fram undir morgun takk fyrir. Finn að það á einstaklega vel við mig að vera grúppía 8) hahaha

jæja, staða lýðræðis í heimskerfinu tekur nú við
blessó


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 17:11:35 / vilborg

Til hamingju Ísland


jæja...febrúar er genginn í garð. Þónokkur dagskrá þennan mánuðinn og má þar helst nefna Bikarmót FSÍ í hópfimleikum nk. föstudag þar sem Grótta MMF verður fremst í flokki :!: Kosningar til stúdentaráðs HÍ eru svo einnig í vikunni,  miklir hagsmunir í húfi fyrir mig þar. Árshátíð stjórnmálafræðiskorar á Hótel Selfossi þar á eftir en þar er maður vel kunnugur eftir hr árshátíð 1sta árs. 
já svo byrjaði ég í magadansi í gær :!: Hlynsipins gaf beggu sinni námskeið í jólagjöf og ég ákvað að skella mér með, ekki það að maður hafi mjög mikinn tíma aflögu, en það er nauðsynlegt að prófa e-ð nýtt. Tíminn var mjög skemmtilegur og hver veit nema nýju moves-in hleypi smá vídd í fimleikaæfingarnar. ætla að reyna að komast á svona 2-3 mismunandi námskeið áður en ég fer út. (og tek þátt í SYTYCD :!:

Svo eru það mugison tónleikar 20sta og bandarísku rappsnillingarnir í Pharcyde mæta á Gaukinn 21sta en þá hef ég hlustað á síðan ´95, hip hop hurraaayyy. Ljóst að ég og sólsla tökum sveiflu þar. Ekki má svo gleyma 18.feb eurovisionkvöldi þegar ég mun sitja sveitt við símann svo hún Silvía Night fái nú örugglega 5 atkvæði heimilisins. Til hamingju Ísland! skilurru

þetta er nú meiri romsan. Dagskráin í mars er svo að hendast inn. Þar er efst á baugi viku utanlandsferð til meginlands Evrópu og Íslandsmót FSÍ í hópfimleikum að sjálfsögðu. en meira um það síðar.

Lifið heil


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 13:16:14 / vilborg

siempre número uno


aaaaahhhh. Ég er orðin svo gott sem heil á ný og fór á fyrstu æfinguna í vikunni. það var frábært. Fimleikar eru skemmtilegasta íþrótt sem til er, það er nokkuð ljóst. Kannski að mér finnist það bara af því að ég get e-ð í henni en nákvæmlega ekki neitt í öðrum.....en nei samt ekki, hún er bara best. Núna er bara að vona að rifbeinið hlýði mér og verði til friðs.

Næstskemmtilegast er hins vegar snjóbretti og núna er draumurinn að komast upp í fjöll, hef ekki farið í þónokkur ár, sem er hneisa. Kominn tími á brettaferð.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 18:34:52 / vilborg

handball og smögelse


djöfull er gaman að horfa á handboltann, þeir eru að standa sig ekkert smá vel "strákarnir okkar" haha. maður hreinlega missir sig af æsingi. Vorum að vinna rússana sem við (sérstaklega ég) höfum aldrei unnið á stórmóti áður, vei vei. Verður gaman að horfa meira á morgun og hinn, annað verður sett á hold á meðan.
Annars er lesefnið í þessu mastersnámi hrein geðveiki og lítill tími fyrir annað.  

í annað þó.....reykingar (eða reyk öllu heldur). já má alveg koma með skítkast um það. fór á djammið á fös og átti hreinlega erfitt með að halda augunum opnum eftir ca.2 tíma inni á vegamótum. Leit eflaust út fyrir að ég væri að gefa einhverjum tælandi auga eða þá að ég væri á einhverju. var frelsinu fegin þegar við fórum út í ferskt loft, gat þá glennt augun opin á ný. æðislegt.  Það verður án efa indælt í maí 2007 ef (þegar) frumvarpið góða verður samþykkt og reyklaust verður á skemmtistöðum og kaffihúsum á Íslandi.....jíha. Lítur líka út fyrir að ég verði lítið á landinu þangað til þá frá sumri þannig að það smellpassar. 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 20:44:59 / vilborg

SARS


Var að horfa á þátt á NFS um fuglaflensuna. Maður er ekki alveg að átta sig á þessu. Ef flensan fer að ganga á milli manna er mjög líklegt að heilu þjóðirnar verði í sóttkví á heimilum sínum í 1-3 mánuði, á meðan flensan gengur yfir á viðkomandi svæði. Ekkert er vitað ennþá, hvort þetta verður banvæn flensa eða ekki o.s.frv., en talað er um að hugsanlega gætu 75 til 150 milljón manns látið lífið. Heimsfaraldrar koma 1-2svar á öld og núna eru 40 ár síðan seinasti var. Ef af verður er fólki sem sagt ráðlagt að fara ekki út úr húsi, skólum verður lokað o.s.frv. Bara það allra mikilvægasta verður ennþá starfrækt. Sóttvarnarlæknir Íslands mælti alveg eins með því að fólk færi að birgja sig upp með dósamat og öðru slíku :!:

mér finnst þetta bara svo óraunverulegt, ætli flestum finnist það ekki.....svo sem lítið hægt að gera eins og er hvort sem er. fékk enga síður ónotatilfinningu í magann þegar ég var að horfa á þennan þátt. Maður er svo vanur því að vera nokkuð safe hér á stóra Íslandi fyrir öllum hættum......en svo verður ekki í þessu ef af verður.

p.s. ef, þá vil ég vinsamlegast biðja systur mínar og þeirra fólk (Teitsi er auðvitað möst) að snúa heim sem og allir aðrir erlendis sem mér er annt um. Hef engan áhuga á að dúsa hér ein í sóttkví í marga mánuði étandi túnfisk og spilandi spil við sjálfan mig (kann ekki að leggja kapal).


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 18:08:58 / vilborg

Armstrong, veikindi og linkar


jæja. ég er orðin lasin ofan á allt saman :( Get lítið gert annað en að lesa. Var að klára mjög góða bók, ævisögu Lance Armstrong: Its not about the bike, my journey back to life. virkilega áhrifarík og fær mann til að hugsa. Ef e-r vill fá hana lánaða þá er það very welcome. Fékk svo pakka frá ástralíu í vikunni sem var afar ánægjulegt, nú er það bara spurning um hvenær maður kemur sér þangað, ekki hvort. Setti nýja tengla hér inn, Sigga köbengella, grafíkparið mikla Sólsla og Siggi, Svava argimtona dancing queen og Guðjón sætasti Teitur fengu link á sig hvorki meira né minna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 11:23:04 / vilborg

Ánægjulegir hlutir gerast enn


Hvað er að frétta? jú ég fékk lausn minna mála í vikunni. Þannig er að í lok október byrjaði ég að finna fyrir miklum verk í baki (öllu heldur hægra herðablaði) og sendi heimilislæknirinn minn mig til sjúkraþjálfara. Eftir að hamast hafði verið á bakinu á mér í rúma 2 mánuði þar var ég engu betri (átti að vera tognun) þannig að sjúkraþjálfarinn sendir mig í röntgen. Jújú kemur svo ekki í ljós þar að ég er með brotið rifbein takk fyrir. vei. Æfingarnar sem ég var búin að vera að gera á hverjum degi samviskusamlega samkvæmt ráðum sjúkraþjálfara sem og nuddið og hnykkingarnar hjá honum gerðu ástandið sem sagt ennþá verra og ég er á byrjunarreit (jafnvel ekki einu sinni þar). Minnst 3 vikur í hvíld eru nýjustu ráðleggingar, helst ekki að nota hægri hendina neitt sem er alls ekki gott þar sem það er mót eftir tæpan mánuð. Gleði gleði

þannig að ekki láta ykkur bregða þótt þið sjáið mig niðrí bæ í febrúar sveiflandi höndum eins og ég eigi lífið að leysa


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 22:51:08 / vilborg

af tónleikum, bókalistum og ryksugum


Aloha

Af ekki svo góðum ástæðum þá komst ég á tónleikana "Ertu að verða náttúrulaus?" á lau. Hlynsipins hennar Beggu fékk hettusótt, þurfti að liggja fyrir og ég fékk því miðann hans (löngu uppselt). Begsí hafði auðvitað ekki farið í bólusetninguna eins og hún skynsama ég hafði minnt hana nokkrum sinnum á og situr því kannski í súpunni líka, hopefully not. F.y.i. allir fæddir ´81-´85 er bent á að fara (áhættuhópur), if u didn know. Tónleikarnir voru alveg frábærir. Hápunktar að mínu mati voru Mugison, Hjálmar, Rass, Damien Rice og Sigur Rós. svo kom Ghostigital og skemmdi allt.

jæja er byrjuð í háskóla vors lands og óhætt að segja að þetta verður e-ð allt annað en reykjavíkurháskóli. Nú mun jafnvel ekki duga annað en að kaupa allar bækurnar á bókalistanum en ekki að ljósrita bara aðeins upp úr þeim eins og áður....og ég mun jafnvel þurfa að lesa þær líka 

þó svo að skólagjöldin séu brandari eru bækurnar óhemju dýrar og svo lítur út fyrir að tölvan mín sé endanlega að breytast í ryksugu......spurning hvað maður getur lagt mikið á fellow students. allavega ljóst að ryksugan fær ekki að koma með út þegar að því kemur. Vill einhver gera tölvuskipti?


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 18:53:04 / vilborg

Nýtt ár


Hola mi gente

jæja nær mánuður frá skrifum og best að henda e-u inn hér. Það helsta......jól og áramót yfirstaðin, gleðilegt nýtt ár! Jólin mín voru tileinkuð litla Guðjóni Teiti, sætasta sætasta sætasta frænda. Mun setja góða mynd inn hér af jólasveininum okkar þegar syss setur þær á netið. Þau hafa nú yfirgefið landið og ætla sér ekki að snúa aftur í minnst 6 mánuði. Mér finnst að það mætti alveg banna fólki að fara svona frá manni (ég tala nú ekki um þá sem taka sætasta fjölskyldumeðliminn með).....ekki nógu gott :evil:

Anyways.....búin að taka nýja árið með trompi með smá netshoppi, það hressir ekkert andann meira en það. Felicity 3da sería komin í hús og hin stórmerka fimleikamynd Nadia (1986) á leiðinni. Vidjókvöld í janúar hjá mér, allir áhugasamir velkomnir ;)

hvað er annars nýtt.....upphaf mastersnáms á næsta leyti, fimleikahlé samkvæmt læknisráði (vegna meiðsla, mun ekki verða langt :evil: og og og.....pharcyde tónleikar í lok febrúar, hver kemur ekki með á þá (helgado og jessica B, represent)

p.s. ef einhver veit um einhvern sem er að reyna að selja miðann sinn á tónleikana á lau í Laugardalshöllinni, þá má sá hinn sami hafa samband takk.


» 96 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 22:23:25 / vilborg

Dansi dans dans


Margrét syss er mætt til landsins til að sinna starfi sínu sem rússneskur súludansari.....hver veit nema henni takist að hjálpa mér að komast yfir carlsberg incidentið með góðu slúðri úr dansundirheimum Berlínar, u never know.

annars verð ég að segja að So you think you can dance er með betri sjónvarpsþáttum seinustu ára....ef hann fær fólk ekki til að skrá sig samdægurs í danstíma þá bara veit ekki hvað....snilld.


» 92 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 15:31:32 / vilborg

Vonbrigði helgarinnar


Ég lagði leið mína í vínbúð hér í Reykjavík á föstudaginn til að ná mér í eins og einn tvo Carlsberg bjóra, umlala hélt ég. en nei Carslberg í Danmörku er ekki það sama og Carlsberg á Íslandi......þeim vífilfellsgaurum hefur ekki tekist að kópera aðferðina betur en svo að hann bragðast eins og hver annar íslenskur bjór, sem ég er ekki mikið fyrir. (veit að það er auðvitað notað íslenskt vatn í hann hér en það ætti nú ekki að gera hann verri, þannig að ég vel hina ástæðuna)

Þar fór það....aftur í vodkað for me (nema þegar ég er í köben auðvitað)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 15:37:06 / vilborg

Kaupmannahöfn - borg bjórsins



já það virðist vera sem ekki alveg allir séu búnir að gefast upp á þessari síðu....sá líka að það er aðalfólkið sem er ennþá loyal þannig að ég held áfram að taka svona 3 færslur í mánuði, er það ekki passlegt :D

Var að koma heim úr þriðju og síðustu utanlandsferð ársins, köben var það heillin! Og það í fyrsta sinn á ævinni, geri aðrir betur. Borgin er, eins og flestir vita, frábær og það var ekki leiðinlegt að strolla um á strikinu og eyða öllum peningunum sínum í vitleysu.

Hafði lofað sjálfum mér að eyða engu í mig þar sem visað fékk að kenna vel á því í nýliðinni Amsterdamferð....en það tókst auðvitað ekki. Það er ekki sniðugt að hleypa kvenmanni inn í H&M með kreditkort í för, komst að því eftir 25.000 króna eyðslu þar....reyndar fór alveg næstum 10.000 kall af þessu í jólagjafir handa bestu vinkonum og svo er það auðvitað Taxfree dude......þannig að ég er góð. Hef í rauninni komist að þeirri niðurstöðu að ég hreinlega græddi á þessu....og sparaði auðvitað heilmikið

Annað á dagskránni voru Mugison tónleikar með slatta af öðrum Íslendingum, ferðir í ræktina með henni Siggu minni þar sem tíminn fór aðallega í blaður en ekki bi-ceppinn og svo flottur dinner hjá Elínu minni og Gauja hennar í fínu íbúðinni þeirra á Amager, takk fyrir mig :D 

Svo var það ferð í tívolíið (tækin eru auðvitað bara til að horfa á, þið vitið það), flóamarkaður í Fredriksberg, neðanjarðarglerlistasafn og quality time með sætasta sæta litla frænda, honum Guðjóni Teiti, og Maríu syss og Sjonnsaboy (takk fyrir mig enn á ný:D). Ætla að reyna að setja inn mynd frá ferðinni bráðlega. Hefði ekkert haft á móti því að vera aðeins lengur en verð bara að taka aðra ferð eftir áramót....neyðist hreinlega til þess. Carlsberg komst upp á lagið í ferðinni og verður því fyrir valinu hér eftir, umlala, hann er góður. Því miður eru svo seldar yfir 10 tegundir af Gajoli í Danmörku sem ég reyndi að halda mig frá með misjöfnum árangri, maginn fékk ekki alltaf að ráða.....grunar að um 20 pakkar af þessu dóti hafi komist með heim til Íslands...skelfilegt

well, thats it for now
until later....Hej og farvel!

V.


» 103 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 23:59:22 / vilborg

blog


halló gente

hverjir eru það sem skoða þessa síðu....? spurning dagsins. fæ nú engar þúsund heimsóknir á dag enda hef ég minnstan áhuga á því, þar sem skrifin eru fyrir vini og vandamenn. megið skilja eftir comment og ef einhverjir skemmtilegir eru á ferð held ég kannski eitthvað áfram að skrifa, enda fræðandi skrif hér með eindæmum. svo væri líka bara gaman að heyra í ykkur elskurnar mínar

8|

p.s. amma ekki vera hrædd við að commenta


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10